Bókin er að klárast en persónan er
ekki að skila sér
Orðin góð að missa
kannski er það svona sem þetta fer
Halda í hugmynd að ást
leggjast lágt
öskra hátt
prófa nýja átt
Ég held ég hafi byrjað afturábak
ég þurfti að læra að elska til að skilja það
Og öll sárin urðu að stjörnukorti
sem ég kunni ekki að lesa úr
þangað til þú
þú horfðir á mig með allt annarri ást
Hjartað stærra, anda hægar
engir stælar, fljúga hærra
Hætta að leita, byrja að leika blóðheitan leik
myndskreyta, umbreyta öllu
En hefði lífið farið eins og ég planaði
værir þú þá hér?
Ég held ég hafi byrjað afturábak
ég þurfti að læra að elska til að skilja það
Og öll sárin urðu að stjörnukorti
sem ég kunni ekki að lesa úr
þangað til þú
þú horfðir á mig með allt annarri ást
Ást sem að skilur
þegar orðin eru fá
Ást sem að leitar
þegar aðrir hörfa frá
Ást sem að skynjar dýpra
en það sem aðrir sjá
Ást sem að lifir af
Comments (0)